Yoko fór að fordæmi ekki ómerkari manna en Viggo Morthensen, Jude Law og Quentin Tarantino þegar hún lagði leið sína til Gilberts úrsmiðs á dögunum og keypti íslensk úr.
Yoko keypti þrjú úr af tegundinni JS watch co. Reykjavík sem er u hönnuð og framleidd hjá Gilbert úrsmiði á Laugaveginum.
Yoko valdi JS-úr af týpunni 101 handa Sean. Auk þess keypti hún kvenúr af sömu týpu handa sjálfri sér. „Hún heillaðist mjög af því að það sendur Reykjavík á skífunni," segir Gilbert Ó. Guðjónsson úrsmíðameistari. „Ég átti til úr númer 101 af þessari týpunni 101 sem ég hafði geymt fyrir sérstakt tilefni. Mér fannst þetta sérstakt tilefni þannig að þegar hún var búin að velja úr sagði ég við hana að mig langaði til að hún eignaðist þetta sérstaka eintak," segir Gilbert.

„Hún er virkilega indæl og gaman að tala við hana," segir Gilbert.
Kvöldið áður en Yoko kom í verslunina hafði Gilbert farið með konu sinni og barnabörn niður að sjó til að horfa á upplýsta friðarsúluna. „Ég sagði henni frá því og hvað mér hafði fundist friðarsúlan falleg. Ég þakkaði henni líka fyrir að hafa valið Reykjavík fyrir friðarsúluna," segir Gilbert.
JS-úrin eru ódýrust á 180 þúsund en fara alveg upp í 500 þúsund krónur stykkið. Gilbert segist einnig eiga til takmarkað upplaf af úrunum sem kosti 1300 þúsund en Yoko valdi ekki slíkan lúxus í þetta skiptið.