Eva Longoria bjó til eina ilmvatnið sem hún getur notað 30. apríl 2010 10:45 Felicity Huffman og Teri Hatcher mættu í ilmvatnsveisluna og voru í miklu stuði.
Leikkonan Eva Longoria Parker úr Aðþrengdum eiginkonum hélt veislu nú í vikunni. Þar kynnti hún ilmvatnið Eva sem hún bjó til sjálf. Eva er með ofnæmi í allar áttir og hefur alltaf átt í vandræðum með að vera með ilmvatn. „Alltaf þegar einhver er með ilmvatn nálægt mér byrja ég að hnerra eins og vitleysingur. Ég hef lengi öfundað fólk með ilmvatn. Þess vegna ákvað ég að búa til mitt eigið,“ sagði Eva í veislunni. Hún valdi því efni sem fá hana ekki til að hnerra og úr varð ilmurinn Eva, sem hún segir ferskan. „Eins og maður sé nýkominn úr sturtu.“ Í veisluna, sem var haldin á veitingastað í Los Angeles, mættu Teri Hatcher og fleiri leikarar úr þáttaröðinni Aðþrengdar eiginkonur. Eiginmaður Evu, körfuboltastjarnan Tony Parker, var að keppa og komst ekki en sendi skilaboð til hennar sem voru sýnd á risaskjá í veislunni. Heidi Klum.Þrjár aðþrengdar eiginkonur.Leikkonan Brenda Strong.Eva hress með plakatið af sér.Felicity Huffman.Leikkonan Helena Mattsson.Hjónin Kyle Maclaughlin og Desiree Gruber.Leeann Tweeden fyrirsæta.Leikarinn Adrien Grenier.Maiara Walsh.Leikarinn Mario Lopez.Sarah Lancaster.Vinkonurnar frá Wysteria Lane.
Lífið Mest lesið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Drengurinn sem dó Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Lífið Fleiri fréttir Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Þetta eru drottningar tískuvikunnar í París Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Robyn í hönnun Sólar Hansdóttur Skilnaðarhringir slá í gegn: „Ég set minn á löngutöng“ „Ég fékk alveg gæsahúð þegar ég sá þetta“ Kjólasaga Brooklyns loðin Valentino er allur Ein heitasta stjarna í heimi Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum „Eins nakin og ég kemst upp með“ Sjá meira