Gyðja hannar fyrir Hagkaup 2. júlí 2010 13:30 Ný lína Sigrúnar kemur í verslun Hagkaupa í mars á næsta ári.
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, eigandi Gyðju Collection, vinnur nú að hönnun nýrrar fylgihlutalínu undir nýju nafni, sérstaklega fyrir Hagkaup. Stefnt er að því að línan komi í verslanir Hagkaupa í mars 2011 og verði til sölu í takmarkaðan tíma og upplagi. Hún mun samanstanda af skóm, töskum og beltum. Í nýju línunni verður notast við leðurlíki og því miðað við annan markhóp en Gyðja Collection, sem eingöngu er gerð úr hágæðaefnum. Hún verður með klassískara útliti en Gyðja, þótt handbragð Sigrúnar Lilju muni glögglega sjást. "Við stefnum að sjálfsögðu að því að gæðin verði góð, og ég mun leggja mikið upp úr því að sniðin séu þægileg og hallinn réttur fyrir fætur," segir Sigrún Lilja, hæstánægð með samstarfið. Með samstarfinu við Hagkaup fetar Sigrún Lilja í fótspor þekktra erlendra hönnuða, en til að mynda hefur verslunarkeðjan Target fengið Jean Paul Gaultier til að hanna línur fyrir verslunarkeðjuna undir sínu nafni, innblásnar af hátísku en á góðum kjörum. - hhs
Tengdar fréttir Hjálpa íslenskum konum að láta draumana rætast Sigrún Lilja í Gyðja Collection og förðunarfræðingurinn Berglind Magnúsdóttir standa fyrir námskeiði þar sem þær miðla af reynslu sinni. 14. maí 2010 15:45 Mest lesið Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira
Hjálpa íslenskum konum að láta draumana rætast Sigrún Lilja í Gyðja Collection og förðunarfræðingurinn Berglind Magnúsdóttir standa fyrir námskeiði þar sem þær miðla af reynslu sinni. 14. maí 2010 15:45