Í umfjöllun um málið í Guardian segir að heimsmarkaðsverð á byggi hafi hækkað úr 85 pundum á tonnið og í 175 pund frá því snemma í sumar. Bruggverksmiðjur kaupa hinsvegar sitt bygg 12 til 18 mánuði fram í tímann þannig að ekki er reiknað með að áhrifin af þessum hækkunum muni gæta í bjórverðinu fyrr en á sama tíma að ári.
Áhrifa af þessum hækkunum er farið að gæta hjá hluthöfum stærstu bruggverksmiðja heimsins. Þannig lækkuðu hlutir í Carlsberg um 6% í síðustu viku og hlutir í Budweiser og Stella Artois lækkuðu um 5% á sama tíma. Hlutir í Heineken lækkuðu svo um 5% í þessari viku.
Kráareigandi í Dorset reiknar með að hálfur líter af bjór hjá honum muni kosta 4 pund að ári en hann kostar 3 pund í dag. Þarna spilar að vísu inn í boðað hækkanir á virðisaukaskatti upp á 2.5% og áfengisgjöldum upp á sömu prósentu. Að teknu tilliti til þess má spá fyrir um að stór bjór á Íslandi muni kosta nokkuð yfir 1.000 krónur næsta sumar.