Batman hasarblað sló Superman út í verðmæti 26. febrúar 2010 10:52
Sjaldgæft eintak af Batman hasarblaði frá árinu 1939 var selt á uppboði fyrir yfir eina milljón dollara. Þar með sló það verðmet Superman en nýlega seldist fyrsta útgefna hasarblaðið með Superman á eina milljón dollara eins og greint var frá hér á síðunni í gærdag.Batman blaðið sem hér um ræðir er Detective Comics No. 27 en uppboðið fór fram í Dallas í Texas. Bæði seljandi og kaupandi óskuðu nafnleyndar að því er segir í frétt um málið á BBC.Barry Sandoval talsmaður uppboðshússins Heritage í Dallas segir að aldrei í sögunni hafi meira verð fengist fyrir gamalt hasarblað. „Verðið sem fékkst fyrir þetta eintak var langt umfram væntingar okkar," segir Sandoval.Þegar Detective Comic No. 27 kom út 1939 kostaði það 10 sent. Það fylgir sögunni að seljandi blaðsins nú hafi greitt 100 dollara fyrir eintakið árið 1960.Samkvæmt sérfræðingum var það alltaf í kortunum að Superman eða Batman myndu rjúfa milljón dollara múrinn hvað verðmæti hasarblaða með þessum ofurhetjum varðar.
Mest lesið Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Viðskipti innlent Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Viðskipti innlent Skrautleg saga laganna hans Bubba Viðskipti innlent Sætta sig ekki við höfnun Kviku Viðskipti innlent Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira