Tómas Ingi: Þeir vildu þetta meira Hjalti Þór Hreinsson skrifar 4. september 2010 17:30 Tómas Ingi Tómasson. Fréttablaðið/Valli
Leiknismenn unnu HK naumlega á heimavelli sínum í dag en sigurinn var síst of stór. Þeir skoruðu aðeins eitt mark sem kom þeim þó aftur í toppsætið, með Víkingum. HK er aftur á móti neðarlega og ekki lausir við falldrauginn þó ólíklegt sé að þeir fari niður. Til þess þurfa þeir að tapa stórt báðum leikjunum og bæði Grótta og Fjarðabyggð að vinna sína leiki. Tómas Ingi Tómasson, þjálfari HK, var ekki par sáttur með spilamennsku sinna manna í dag. "Þeir sem vilja þetta meira í dag, þeir fá þetta. Leiknismenn eru að keppa að því að komast upp í úrvalsdeild og þeir hafa sýnt það og sannað að þeir eru mjög sterkir, þá sérstaklega varnarlega en þeir hafa aðeins fengið á sig fimmtán mörk í sumar." "Svo eru þeir með öskufljóta menn þarna frammi sem eru mjög góðir, og verða góðir á næsta ári ef þeir komast upp." "Leikurinn var eiginlega hálfgerð hörmung. Við erum í veseni með einfaldar sendingar og móttökur. Boltinn er sendur útaf hvað eftir annað hjá báðum liðum." "Ég skil Leiknismenn að vera pínulítið stressaða en ég skil ekki okkur. Við erum ekki lausir úr fallbaráttu og ég hefði viljað fá meira frá mínu liði" "Síðasta sendingin okkar, og meira að segja þar síðasta sending og sendingin þar áður klikkuðu líka. Það datt ekkert með okkur í dag og við áttum ekki meira skilið en við fáum," sagði Tómas Ingi.
Íslenski boltinn Mest lesið Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Enski boltinn Óli Óla: Við getum alveg eins hrokkið upp af á morgun Körfubolti Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Körfubolti „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti Dagskráin í dag: Formúla, frábærir leikir í enska og uppgjör frægra í Doc Zone Sport Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Fótbolti Bjarni með tíu og KA áfram í toppbaráttu Handbolti Glódís leiðir Bayern áfram í hárrétta átt Fótbolti Uppgjörið: Ármann - Tindastóll 77-110 | Tindastóll of stór biti fyrir Ármann Körfubolti Fleiri fréttir Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Sjá meira