AP Evruríkin sextán komu sér í gær saman um að veita Grikklandi fjárhagsaðstoð, ef önnur úrræði duga ekki. Önnur evrulönd, sem eiga í alvarlegum fjárhagsvandræðum, geta fengið aðstoð á sömu forsendum.
Frakkar og Þjóðverjar höfðu fyrir fundinn náð samkomulagi um áætlun til hjálpar Grikkjum, sem felur í sér að þeim verði veitt rúmlega 20 milljarða evra lán, en því aðeins að aðrir lánamöguleikar á frjálsum markaði lokist alveg.
Á aukafundi evruríkjanna í tengslum við leiðtogafund Evrópusambandsins í Brussel í gær var áætlunin samþykkt.
Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir að hluti lánsins komi frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, en megnið af upphæðinni skiptist á milli hinna fimmtán evruríkjanna.
Jan Claude-Trichet, seðlabankastjóri Evrópusambandsins, styður einnig þessa áætlun.
Angela Merkel Þýskalandskanslari hafði lagt mikla áherslu á að Grikkir fengju engin lán frá Evrópusambandsríkjum nema aðrir lánamöguleikar lokist. Hún náði þessari kröfu sinni fram, en á móti kemur að Þjóðverjar þyrftu líklega að greiða Grikkjum meira en önnur ríki samkvæmt þessari áætlun.- gb