Handbolti

Logi: Vorum með þetta allan tímann

Elvar Geir Magnússon skrifar
Logi Geirsson.
Logi Geirsson.
„Við vorum klárlega betri aðilinn í dag og þrátt fyrir að hafa aðeins dottið niður í leiknum vorum við með þetta allan tímann," sagði Logi Geirsson eftir að FH vann sannfærandi sigur á Selfossi í kvöld.

„Við vorum að nýta alla breiddina og Pálmar var frábær í markinu," sagði Logi sem stýrði sóknarleik FH af miklum myndarskap í kvöld.

„Það var einbeitingarskortur sem varð til þess að við kláruðum þetta ekki með tíu mörkum. Við ætlum að vinna hvern einasta leik og þetta er bara þáttur í því. Síðustu ár hefur FH oft misstigið sig gegn litlu liðunum. Með fullri virðingu fyrir Selfossi er það lið sem við eigum bara að vinna miðað við mannskap."

Næsti leikur hjá FH er á Húsavík gegn Völsungi í bikarnum. „Það verður gaman fyrir Völsung að fá toppliðið í heimsókn," sagði Logi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×