Handbolti

Hafþór: Hefðum mátt kroppa í annað stigið

Hjalti Þór Hreinsson á Akureyri skrifar
Hafþór Einarsson gat ekki komið í veg fyrir tap sinna manna í Aftureldingu gegn sínum gömlu félögum í Akureyri í kvöld. Mosfellingar töpuðu 28-23 norðan heiða.

Hafþór átti fínan leik í markinu og varði alls tólf skot þann tíma sem hann spilaði, með 39% markvörslu alls.

Hafþór er nýfluttur suður og hefur haldið sér í formi á fjölum Hallarinnar þar sem spilað var í kvöld en hann fór frá Akureyri í sumar.

"Það var ömurlegt að tapa þessum leik," sagði Hafþór. "Við vorum í bullandi séns og áttum alls ekki að vera þremur mörkum undir í hálfleik."

"Þeir koma sterkir inn í seinni hálfleikinn en við erum á hælunum. Við komum sterkir til baka og hefðum alveg mátt kroppa í annað stigið. Við klikkum á þremur vítum og þetta gekk ekki alveg nægilega vel."

"Þetta er þó framför frá FH-leiknum og það er stígandi í liðinu sem er jákvætt. Ef höldum áfram að bæta okkur þá kroppum við stig af liðunum úr efri hlutanum. Við förum þetta á gleðinni og njótum þessa að vera í efstu deild," sagði Hafþór áður en blaðamaður innti að honum að reynsluleysi hefði komið liðinu um koll.

"Reynsla og ekki reynsla, allir verða að byrja einhverntíman," sagði hinn síungi Hafþór. "Það tekur bara smá tíma og ég efast ekki um að við verðum sterkari þegar á líður á mótið. Við eigum fyrsta heimaleikinn næst og þá mun Rothöggið koma gríðarlega sterkt til leiks að Varmá. Það verður eitthvað," sagði Hafþór.




Tengdar fréttir

Atli: Við eigum ýmislegt inni

Atli Hilmarsson stýrði Akueyri í sínum fyrsta heimaleik í kvöld. Hann fer vel af stað með liðið, það hefur unnið báða leikina sína í deildinni til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×