Nafnið bara passaði 4. desember 2010 06:00 Signý Kolbeinsdóttir rekur fyrirtækið Tulipop ásamt vinkonu sinni, Hildi Árnadóttur. Tulipop framleiðir meðal annars falleg kort og skissubækur.
Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir reka saman hönnunarfyrirtækið Tulipop. Signý sér um að hanna vörurnar en Helga sér um viðskiptahlið fyrirtækisins. Þær stöllur kynntust þegar þær stunduðu nám við Menntaskólann í Reykjavík og hafa verið vinkonur allar götur síðan. Að sögn Signýjar hafði hugmyndin að fyrirtækinu verið lengi til þar til þær loks stofnuðu Tulipop í janúar á þessu ári. „Sagan í kringum nafnið er löng og flókin en okkur fannst nafnið Tulipop eiginlega bara smellpassa við teikningarnar mínar,“ útskýrir Signý. Tulipop hefur hingað til aðallega framleitt falleg kort og skissubækur en mun bæta við vörulínu sína innan skamms. „Við ákváðum að byrja smátt og fara svo út í stærri hluti. Við erum byrjaðar að selja vörur okkur erlendis og þær fást núna víða í Svíþjóð og einnig í Kisunni í New York þannig að það eru spennandi tímar fram undan,“ segir Signý glaðlega. Hér heima fást vörur Tulipop meðal annars í verslununum Mýrinni, Aurum, Epal og Kisunni. Stúlkurnar hafa einnig tekið að sér nokkur hliðarverkefni og hönnuðu meðal annars páskaegg fyrir UNICEF um síðustu páska og nú síðast sparibauk fyrir MP banka sem Signý segist hlakka til að sjá verða að veruleika. Þegar hún er að lokum spurð hvaðan hún fái hugmyndirnar að fígúrum sínum segir Signý þær koma til hennar í hollum. „Eins og núna, á meðan ég tala í símann er ég að krassa á blað. Stundum er hægt að nota eitthvað sem kemur úr því krassi,“ segir hún og hlær. - smHeimasíða Tulipop.
Mest lesið Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira