Strákarnir í 19 ára landsliðinu tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum á HM í Túnis með 33-31 sigri á heimamönnum í undanúrslitaleiknum í kvöld. Íslenska liðið lenti mest fimm mörkum undir en kom sterkt til baka og vann glæsilegan sigur.
FH-ingurinn Ólafur Guðmundsson skoraði 10 mörk í leiknum, Akureyringurinn Oddur Grétarsson var með sjö mörk og fyrirliðinn Aron Pálmarsson skoraði fimm mörk. Ísland mætir Króatíu í úrslitaleiknum á föstudagskvöldið.