Fótbolti

Guardiola boðinn nýr samningur á Nývangi

Ómar Þorgeirsson skrifar
Pep Guardiola.
Pep Guardiola. Nordic photos/AFP

Spænskir fjölmiðlar greina frá því í dag að knattspyrnustjóranum Pep Guardiola hjá Barcelona hafi verið boðinn nýr og betri samningur við félagið en nánast fullkomið síðasta keppnistímabil þegar Börsungar unnu þrennuna, deild, bikar og meistaradeild.

Allt þjálfarateymi Börsunga er á langtímasamningum fyrir utan Guardiola sem hefur verið tregur til að semja fram að þessu.

Forsetinn Joan Laporta hjá Barcelona heldur þó áfram að reyna og er sagður nýlega hafa lagt fram enn eitt samningsboðið til handa Guardiola.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×