Bandaríski stórbankinn JPMorgan horfir nú fram á hagnað upp á 29 milljarða dollara eða 3.700 milljarða kr. þar sem bankinn hefur náð að breyta slæmum lánum í tekjur.
Blomberg fjallar um málið í dag en það á rætur sínar að rekja til reglna um afskriftir á lánasöfnum í Bandaríkjunum. Reglurnar gera bönkum kleyft að afskrifa mun hraðar og í meira umfangi þau slæmu lán sem eru í bókum þeirra.
JPMorgan yfirtók Washington Mutual (WaMu) í september á síðasta ári en WaMu var þá kominn í þrot. Greiddi JPMorgan 1,9 milljarða dollara fyrir WaMu. JPMorgan notaði síðan bókhaldsreglurnar til að afskrifa strax 25% af 118,2 milljarða dollara eignasafni WaMu eða um 29 milljarða dollara.
Það sem gerst hefur síðan er að vextir í Bandaríkjunum hafa hrapað niður í undir eitt prósent og hefur það gert lántakendunum kleyft að standa í skilum á þessum „slæmu" lánum sínum. Það aftur á móti gerir JPMorgan kleyft að setja þessi lán aftur inn í bókhald sitt sem eignir.
Samkvæmt Bloomberg munu fleiri bankar, sem tekið hafa yfir aðra banka og fjármálastofnanir síðan í fyrra, njóta góðs af þessari þróun.