Verð á eldislaxi heldur áfram að hækka í Evrópu 10. júlí 2009 13:32
Verð á eldislaxi heldur áfram að hækka í Evrópu og er nú komið yfir 40 norskar kr. fyrir kílóið af minnsta laxinum eða um 800 kr. Verð a stærsta laxinum er komið í 44 norskar kr. Þetta eru verðin nú á laxamarkaðinum Fish Pool og miðast við lax til slátrunar í næstu viku að því er segir á vefsíðunni e24.no. Samkvæmt Birgitte Sörheim markaðsstjóra Fish Pool skýrast verðhækkanir þessar af minnkandi framboði og minni framleiðslu eldisstöðvanna á þessum árstíma. Við fréttirnar í morgun um hækkandi verð á eldislaxi hækkuðu hlutabréf í Marine Harvest um 1,9% en félagið er stærsti framleiðandi á eldislaxi í heiminum. Verð á eldislaxi hefur haldist hátt nær allt þetta ár sökum vandræða með sjúkdóma í eldisstöðvum í Chile. Landið er stærsti framleiðandi heimsins á eldislaxi en vegna sjúkdóma hefur framleiðslan dregist saman um 60%. Ekki er talið líklegt að Chile nái fyrri ársframleiðslu, 500.000 tonnum, fyrr en eftir þrjú til fjögur ár.
Mest lesið Arion og Kvika í samrunaviðræður Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Viðskipti innlent Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Viðskipti innlent Sætta sig ekki við höfnun Kviku Viðskipti innlent Skrautleg saga laganna hans Bubba Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira