Olíubirgðir heimsins klárast fyrr en áður var talið 10. nóvember 2009 12:23
Olíubirgðir heimsins eru mun nær því að klárast en viðurkennt hefur verið. Þetta er fullyrt í breska dagblaðinu Guardian í dag, þar sem einnig kemur fram að hámarki olíuframleiðslu í heiminum sé þegar náð. Blaðið hefur eftir hátt settum ónafngreindum heimildarmanni hjá Alþjóðaorkumálastofnuninni, að stofnunin hafi vísvitandi reynt að draga úr áhyggjum í þessum þessum efnum. Það hafi verið gert til að koma í veg fyrir að áhyggjur af yfirvofandi olíuskorti valdi miklum verðhækknum á olíu. Því hefur verið haldið fram að auka megi olíuframleiðslu úr um 83 milljónum tunna á dag, upp í 105 milljónir tunna. Enn eigi eftir að vinna mikla oliu úr þeim olíulindum sem þegar eru fundnar, auk þess sem nýjar eigi eftir að finnast. Slíkar spár hafa verið gagnrýndar. Haft er eftir breskum þingmanni í frétt Guardian að þessar upplýsingar auki enn mikilvægi þess að árangur náist á Kaupmannahafnarfundinum um loftslagsbreytingar, sem haldinn verður í næsta mánuði.
Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira