Fótbolti

Laporta: Guardiola þarf tíma til að ákveða hvort hann framlengi við Barcelona

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Þungt hugsi, stjórinn.
Þungt hugsi, stjórinn. Nordicphotos/GettyImages
Pep Guardiola, stjóri Barcelona, þarf tíma til að íhuga framtíðina vel áður en hann skrifar undir framlengingu á samningi sínum við félagið.

Átján mánuðir eru síðan þessi fyrrum fyrirliði Barcelona skrifaði undir tveggja ára samning. Hann hefur enn ekki lengt samninginn.

Joan Laporta, forseti Barcelona, hefur ítrekað reynt að fá Guardiola til að framlengja samninginn, sérstaklega þar sem forsetakosningar fara fram á næsta ári.

„Pep þarf réttan tíma til að setja hlutina í samhengi og komast að ákvörðun sem er mjög mikilvæg í lífi allra. Hann hefur stýrt liðinu til besta árs í sögu Barcelona. Hann veit að það er skylda hans að halda áfram að vinna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×