Frétt birtist á opinberri heimasíðu þýska félagsins Borussia Dortmund þess efnis að félagið hefði keypt Luca Toni frá Bayern München. Þessi frétt reyndist ekki sönn heldur verk tölvuþrjótar sem hakkaði sig inn á síðuna.
„Við þyrftum að ræna Englandsbanka til að geta keypt Luca Toni," sagði Michael Zorc hlæjandi þegar hann var spurður út í málið en hann er yfirmaður íþróttamála hjá Dortmund.
Toni er 32 ára en talið er líklegt að hann yfirgefi herbúðir Bayern eftir að hafa lent í útistöðum við þjálfarann Louis van Gaal.