Leikfangakeðjan Hamleys mun halda áfram að fjölga verslunum sínum og sölustöðum það sem eftir er ársins og fram á næsta ár. Salan hjá Hamleys hefur tekið kipp upp á við eftir eitt erfiðasta rekstrarár í 249 ára sögu keðjunnar.
Hamleys er nú alfarið í eigu Íslendinga, skilanefnd Landsbankans fer með tæplega 64% hlut sem áður var í eigu Baugs og það sem upp á vantar er í eigu þrotabús Fons.
Eins og áður hefur komið fram skilaði Hamleys töluverðu tapi á síðasta rekstrarári sem lauk í lok mars s.l. Höfuðástæðan var að salan minnkaði um 12% frá október í fyrra og fram til mars. Hinsvegar hefur þessi þróun snúist við síðan og jókst salan milli mars og júní í ár um 5%.
Breska blaðið The Times greindi nýlega frá því að auk þess að opna nýjar verslanir í Jódaníu, Dubai og Dublin á síðasta ári ætlar keðjan að opna verslanir í Glasgow, Leeds, Manchester, Cardiff og Mumbai á þessu ári. Þar að auki eru uppi áform um að setja upp sölustaði fyrir leikföng Hamleys á alþjóðlegum flugvöllum.
Guðjón Reynisson forstjóri Hamleys segir í samtali við Times að það sé mikilvægt að taka aukna útbreiðslu keðjunnar eitt skref í einu. „Síðasta ár var viðburðarríkt hjá okkur," segir Guðjón. „En við tókum ákvarðanir um að straumlínulaga starfsemina."
Alasdair Dunn fjármálastjóri Hamleys segir að hið óvenjulega eignarhald á Hamleys hamli þeim ekki. „Bæði Landsbankinn og Fons eru með hagsmuni kröfuhafa í huga og hafa sagt að þeir vilji hámarka virði keðjunnar til lengri tíma litið," segir Dunn.