Yfirtakan á Singer & Friedlander rannsökuð sérstaklega 4. febrúar 2009 08:28
Þingnefnd sú á breska þinginu sem er að rannsaka orsakir bankakreppunnar þar í landi hefur ákveðið að rannsaka sérstaklega yfirtöku Kaupþings á Singer & Friedlander bankanum árið 2005. Nefndin ákvað þetta eftir vitnaleiðslur í gærdag þar sem m.a. var rætt við Tony Shearer fyrrum forstjóra Singer & Friedlander og yfirmenn hjá breska fjármálaeftirlitinu. Samkvæmt frétt um málið í blaðinu The Times ætlar formaður þingnefndarinnar, John McFall, að óska eftir því að aðrir yfirmenn og stjórnendur Singer & Friedlander komi fyrir nefndina. Þetta var ákveðið eftir vitnisburð Tony Shearer þar sem hann sagði m.a. að hann hefði reynt að fá breska fjármálaeftirlitið til að stöðva yfirtökuna..."þar sem stjórnendur Kaupþings væru ekki hæfir til að reka bankann" eins og hann komst að orði. Fulltrúi breska fjármálaeftirlitsins (FSA) sagði að þeir hefðu ekki fundið neina ástæðu til að stöðva yfirtökuna eftir að íslenska fjármálaeftirlitið tjáði þeim að allt væri í stakasta lagi með Kaupþing.Þingnefndin hefur ákveðið að kalla fulltrúa FSA aftur fyrir síðar í mánuðinum þar sem ekki fengust skýr svör í gærdag um hlutverk FSA í hruni Singer & Friedlander í gær.
Mest lesið Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Viðskipti innlent Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Viðskipti innlent Gátu ekki fært sönnur á fullyrðingar um virkni sveppadropa og dufts Neytendur BYKO PLÚS er nýr fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga Samstarf Arctic Fish fær heimild til frekara fiskeldis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf