Magnus Bocker framkvæmdastjóri og næstráðandi Nasdaq OMX Group, sem kauphöllin hérlendis tilheyrir, mun láta af störfum á næstunni og taka við stjórn kauphallarinnar í Singapore.
Hinn 47 ára gamli Bocker er fæddur og uppalinn í Svíþjóð en síðan hann tók við stjórn OMX árið 2003 hefur hann m.a. bætt kauphöllunum á Íslandi, í Lettlandi og í Svíþjóð við starfsemina.
Í frétt um málið á Bloomberg fréttaveitunni segir að stjórnunarhæfileikar Bocker hafi komið einna best í ljós þegar Nasdaq og kauphöllin í Dubai börðust um yfirráðin yfir OMX. Upphaflega gerði Nasdaq tilboð í OMX upp á 3,2 milljarða dollara en kauphöllin í Dubai lagði þá fram tilboð sem var 14% hærra.
Niðurstaðan varð svo að Dubai beygði sig í yfirtökunni á OMX gegn því að fá hlut í Nasdaq. Í framhaldinu varð Bocker svo framkvæmdastjóri Nasdaq OMX Group.
Bocker er maraþonhlaupari og hann safnar glermunum frá millistríðsárunum. Hann er menntaður frá háskólanum í Stokkhólmi og hóf störf eftir það hjá OMX árið 1986.