Fær tvö olnbogaskot í stað eins 4. júní 2008 19:06 Jón þarf í fyrsta sinn á ferlinum að spila á móti Magnúsi félaga sínum næsta vetur Mynd/Víkurfréttir "
Maggi verður alltaf vinur minn hvort sem hann fer í Njarðvík eða eitthvað annað," sagði Jón Norðdal Hafsteinsson, leikmaður Keflavíkur, um ákvörðun félaga hans Magnúsar Gunnarssonar um að ganga í raðir Njarðvíkinga. Jón segist virða ákvörðun Magnúsar að vilja breyta til og segist vænta þess að hún mæti almennt skilningi hjá fólki. "Það er auðvitað slæmt að missa Magga úr Keflavík en þetta er samt enginn heimsendir hjá okkur. Það verður líka bara skemmtileg áskorun að spila á móti honum," sagði Jón í samtali við Vísi í kvöld. Þeir Jón og Magnús hafa spilað saman síðan þeir voru smápattar og því verða viðbrigðin talsverð að mati Jóns. "Við erum búnir að spila saman síðan við vorum níu ára gamlir og höfum unnið allt sem hægt er að vinna í körfuboltanum hérna heima. Það má segja að sé verið að slíta á naflastrenginn hjá okkur. Þetta verður áskorun fyrir mig líka," sagði Jón. En má Magnús ekki eiga von á óblíðum móttökum frá leikmönnum og stuðningsmönnum Keflavíkur þegar liðin mætast næsta vetur? "Það er alltaf rígur á milli Keflavíkur og Njarðvíkur, en hann fær svosem ekkert verri móttökur hjá okkur af því hann er hjá Njarðvík. Hann á eflaust eftir að fá einhverjar kyndingar þegar hann kemur hingað. Ætli við gefum honum bara ekki tvö olnbogaskot í staðinn fyrir eitt," sagði Jón hlæjandi.
Dominos-deild karla Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira