Putin vann NATO Óli Tynes skrifar 4. apríl 2008 11:42
Vegna hótana Vladimirs Putins, forseta Rússlands, heyktist NATO á því í gær að bjóða Úkraínu og Georgíu að hefja aðildarferli að bandalaginu. Putin hótaði því meðal annars að miða kjarnorkueldflaugum á Úkraínu ef landið fengi aðild og gæfi leyfi til þess að hluti af loftvarnakerfi Bandaríkjanna yrði sett þar upp. George Bush forseti Bandaríkjanna studdi mjög eindregið að Úkraína og Georgía fengju að hefja aðildarferli. Honum tókst þó ekki að sannfæra leiðtoga annarra aðildarríkja. Frakkar og Þjóðverjar fóru fyrir þeim sem vildu fresta afgreiðslu málsins að minnsta kosti fram til næsta leiðtogafundar, sem verður í desember. Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO átti í dag fund með leiðtogum landanna tveggja og reyndi að hugga þá. Hann lofaði því að NATO myndi styðja þá með ráðum og dáð. Hann sagði einnig að hann væri sannfærður um að þessi tvö fyrrverandi sovétlýðveldi fengju aðgang að NATO áður en langt um liði.
Erlent Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira