Olíuþegnarnir 31. mars 2008 10:51 Ég tek ofan fyrir trukkabílstjórum landsins. Þeir hafa afsannað þá alkunnu kenningu að Íslendingar láti allt yfir sig ganga - og kjósi fremur að ganga með veggjum, þegar á bjátar, fremur en að byrsta sig á torgum. Íslendingar hafa gjarnan mótmælt með fámunalega aumri aðferð, sem felst í því að þusa, hver í sínu horni, en snúa sér því næst til veggjar og byrgja reiðina innra með sér. Það er af þessum ástæðum sem Íslendingar ganga á stundum með höfuð sín í handarkrikanum, því fátt er þeim raunameira en að deila áhyggjum sínum með öðru fólki; það kallar á ódrukkin samtöl, samhug, samstöðu. Sem er ekki íslenskt. Belgar eru annarrar náttúru; ófemnir við að ræsa traktorana sína og tæta og trylla stjórnkerfið í Brúarseli ef áburðarverð hækkar um þumlung. Vestur í Bandaríkjunum keyra menn fylkja á milli til að kaupa gallonið við betra verði en heima fyrir. Á Spáni ganga lestarstjórar út á einu augabragði og lama samfélagið. Og trukkabílstjórarnir í Frans eru svo auðvitað sér kapituli í þessu ævintýri öllu; hin raunverulega franska bylting sem enn lifir. Heima á Íslandi hefur þetta verið aumara en úldinn fögl, eins og sagt var fyrir austan í bágindum síðmiðalda. Þar til fyrir helgi ... að vonin birtist í býsna þrútnum bílstjórum. Íslenskum, vel að merkja. Svo ... nú er eitthvert vor í lofti. Það er franskt andrúm. Altént eitthvað útlenskt við þessi tíðu og markvissu mótmæli íslensku trukkabílstjóranna sem standa reiðir framan við tíu hjóla tröllin sín og horfa eins og fornkappar á eina allsherjar Lýðveldishátíðarlengju af almenningsfarartækjum í halarófu á eftir sér (sem Mogginn, vel að merkja kallar skrílslæti í leiðara sínum !!! ) En þjóðin er sammála, ekki Mogga, heldur mönnunum við stýrið. Merkilegt nokk. Í orði, altént. Hún veit sem er að trukkarnir hafa talað ... af viti. En hvar er hin raunverulega samstaða? Hvar er einkabílaalþýðan annars staðar en föst í röðinni? Það vantar að þjóðin leggist á sveif með testósterón-tröllunum - og taki þetta með trukki og dífu. Eða ætlar hún að snúa sér til veggjar ... enn einu sinni? Og þusa grúfð í koddann sinn ... -SER. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mannamál Sigmundar Ernis Mest lesið Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason Skoðun Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna Samúel Torfi Pétursson Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson Skoðun Stærð er ekki mæld í sentimetrum Sigmar Guðmundsson Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Áður en íslenskan leysist upp Gamithra Marga Skoðun Hverjum þjónar nýsköpunin? Halldóra Mogensen Skoðun Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur Eden Frost Kjartansbur Skoðun Þegar ríkið fer á sjóinn Svanur Guðmundsson Skoðun
Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun
Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun