Þar sem Werder Bremen beið lægri hlut fyrir Eintracht Frankfurt í gær gat Bayern München náð sex stiga forystu í þýsku deildinni með því að vinna Hamborg í dag.
Bæjarar náðu hinsvegar aðeins jafntefli 1-1 og því forysta liðsins á toppnum komin í fjögur stig. Ivica Olic kom Hamborg yfir en Zé Roberto jafnaði metin og þar við sat.