Deildarbikarsmálið svokallaða er orðin að sögunni endalausu en settur dómari í málinu þurfti að segja sig frá því vegna tengsla við Fram.
Einar Þorvarðarson, framkvæmdarstjóri HSÍ, staðfesti þetta í samtali við Vísi og sagði að dómarinn, Jóhannes Albert Sævarsson, hafi gert þetta af eigin frumkvæði. Hann býst við því að nýr dómari verður settur í málið í dag.
Málið snýst um að ritari úrslitaleiks Fram og Hauka í deildarbikarkeppninni skráði eitt aukamark á Fram í fyrri hálfleik. Fram vann leikinn með tveggja marka mun en síðasta markið kom í blálokin þegar Haukar voru svo gott sem hættir að verjast.
Haukar kærðu úrslit leiksins en þeirri kæru var vísað frá vegna formgalla. Haukar kærðu á nýjan leik og átti úrskurður að liggja fyrir í upphafi vikunnar. Nú verður einhver bið í þessu máli enn á ný.
Bergþóra Sigmundsdóttir, formaður dómstóls HSÍ, sagði við Vísi fyrir tíu dögum síðan að þegar hafi verið reynt að leita sátta hjá málsaðilum en það hafi ekki tekist.