Íslenska landsliðið í handbolta hefur yfir 19-18 gegn Dönum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í leik liðanna á æfingamótinu í Danmörku. Íslenska liðið hefur verið einu til þremur mörkum yfir lengst af í hálfleiknum.
Logi Geirsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson hafa skorað 4 mörk hver fyrir íslenska liðið, Snorri Steinn Guðjónsson er með 3 mörk, Einar Hólmgeirsson 2 og þeir Ásgeir Örn Hallgrímsson og Sigfús Sigurðsson sitt markið hvor.