Mikill liðsstyrkur í Herði 24. september 2008 16:07 Hörður Axel spilar með Keflavík í vetur Mynd/Daníel "
Þetta er skemmtilegt fyrir okkur og leiðinlegt fyrir hann, en hann er að lenda í betra liði hérna hjá okkur," sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur um Hörð Axel Vilhjálmsson sem spila mun með liðinu í vetur. Eins og fram hefur komið gekk Hörður í raðir Keflvíkinga frá Njarðvík í sumar en var svo boðinn samningur hjá sterku liði á Spáni. Hann var svo rekinn frá spænska liðinu og mun því spila með Keflvíkingum í sumar eins og upphaflega stóð til. Hörður stóð frammi fyrir því að vera varaskeifa á Spáni en horfir nú fram á að hafa nóg að gera með Íslandsmeisturunum í vetur. "Þetta þýðir líklega að við munum bara fá okkur einn útlending í viðbót í stað tveggja. Það er bara skemmtilegra og þetta styrkir hópinn okkar tvímælalaust," sagði Sigurður, sem mun keyra nokkuð á ungum mönnum í vetur. Hann fagnar því að sterkir íslenskir leikmenn séu á leið í heimahagana á ný eftir að hafa spilað erlendis. "Það má segja að þetta sé í takt við það sem er að gerast í deildinni núna. Það eru sterkir strákar að koma heim aftur og spila og deildin er að verða enn sterkari og skemmtilegri fyrir vikið," sagði Sigurður í samtali við Vísi. Hann segir ljóst að titilvörn Keflvíkinga eigi eftir að verða erfitt verkefni. "Mér finnst mörg lið bara að verða mjög sterk strax núna og þau eiga eftir að verða enn sterkari þegar líður á veturinn. Það er ljóst að við eigum eftir að þurfa að hafa fyrir þessu," sagði Sigurður glettinn.
Dominos-deild karla Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira