Hermann í byrjunarliði Portsmouth Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. desember 2008 13:30 Hermann Hreiðarsson í leik með Portsmouth. Nordic Photos / Getty Images
Hermann Hreiðarsson líklega í byrjunarliði Portsmouth en liðið mætir Arnóri Smárasyni og félögum í hollenska úrvalsdeildarliðinu Heerenveen í UEFA-bikarkeppninni í kvöld. „Hermann fær pottþétt tækifæri í þessum leik,“ sagði Tony Adams, knattspyrnustjóri Portsmouth. „Hermann hefur þurft að vera þolinmóður,“ bætti hann við. Hann sagði einnig að það væri erfitt að gera margar breytingar á liðinu þar sem margir leikmenn, eins og Djimi Traore, David Nugent og Lauren eru ekki gjaldgengir í keppninni. Portsmouth hefur aðeins hlotið eitt stig úr þremur leikjum í keppninni og á engan möguleika á að komast áfram í 32-liða úrslit, rétt eins og Heerenveen sem er án stiga eftir þrjá leiki. John Metgod, þjálfari hjá Porstmouth, segir að þetta sé kærkomið tækifæri fyrir leikmenn sem hafa ekki fengið mörg tækifæri að undanförnu að sýna sig og sanna. Talið er einnig líklegt að Kanu fái tækifæri í kvöld. „Það er alltaf gott fyrir leikmenn að fá að spila og sýna stjóranum hvað þú getur," sagði Metgod í samtali við staðarblað í Portsmouth. Hermann var í byrjunarliði Portsmouth er liðið tapaði fyrir Braga á útivelli í keppninni og þá kom hann inn á sem varamaður í leik gegn Guimaraes. Hann hefur hins vegar ekki verið í byrjunarliði Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni síðan að Portsmouth tapaði fyrir Chelsea, 4-0, í fyrstu umferð. Síðan þá hefur hann þrívegis komið inn á sem varamaður, síðast í byrjun október er Portsmouth vann 2-1 sigur á Stoke.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Sjá meira