Tónlist

Fór beint á toppinn

Söngkonan Beyoncé fór beint á toppinn í Bandaríkjunum.
Söngkonan Beyoncé fór beint á toppinn í Bandaríkjunum.

Söngkonan Beyoncé fór beint á toppinn á Billboard-listanum í Bandaríkjunum með nýjustu plötu sína, hina tvöföldu I Am… Sasha Fierce. Þetta er í þriðja sinn í röð sem hún fer beint á toppinn þar í landi með plötu.

Nýja platan seldist í 482 þúsund eintökum fyrstu vikuna á lista, sem er aðeins minna en sú síðasta, B-Day, sem seldist í 541 þúsund eintökum. Fyrsta plata hennar, Dangerously in Love sem kom út 2003, seldist í 317 þúsund eintökum.

I Am… Sasha Fierce hefur að geyma lög á borð við If I Were a Boy og Single Ladies (Put a Ring on It). Flytjendur eru Beyoncé og hennar nýja annað sjálf, Sasha Fierce.

Í öðru sæti á listanum var nýjasta plata kanadísku rokkaranna í Nickelback, Dark Horse. Síðasta plata sveitarinnar, All the Right Reasons, var í 156 vikur samfleytt á listanum og því er búist við miklu af nýja gripnum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×