Sigurður þurfti lögreglufylgd af æfingu 20. júlí 2008 12:18
Sigurður Jónsson þjálfari Djurgarden í Svíþjóð fékk lögreglufylgd af æfingu í gær eftir að reiðir stuðningsmenn liðsins ruddust inn á svæðið. Stuðningsmenn Djurgarden eru orðnir langþreyttir á slæmu gengi liðsins sem vann síðast sigur þann 28. apríl síðastliðinn. Liðið hefur ekki unnið síðustu sex leiki í deildinni og eftir markalaust jafntefli gegn eistneska liðinu Flora í Evrópukeppninni í vikunni fengu stuðningsmenn nóg. Fimmtíu þeirra allra hörðustu ruddu sér leið inn á æfingasvæði liðsins í gær þar sem fram fór opin æfing liðsins. Þeir fóru lengra en þeir höfðu leyfi til, framjá öryggisverði og hindrunum og beindu spjótum sínum að eiganda liðsins Bosse Andersson og Sigurði þjálfara. Lögregla var kölluð til og fylgdist með stuðningsmönnunum þar til æfingunni lauk. Að henni lokinni gaf Sigurður sig á tal við stuðningsmennina og baðst afsökunar á gengi liðsins. Hann útskýrði hvað hefði farið úrskeiðis í síðasta leik og sagði að hann og liðið væru að reyna að lagfæra það sem aflaga hefur farið. Að svo búnu fylgdi lögreglan Sigurði af svæðinu. Sigurður sagði í samtali við dagllaðið Expressen að hann hefði ekki orðið umræddra stuðningsmanna var meðan á æfingunni stóð en bætti við að hann skilji gremju þeirra. Djurgarden er í níunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar, fjórtán stigum á eftir toppliði Kalmar.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn „Þriðji leikhlutinn fór með þetta“ Sport „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Körfubolti Fleiri fréttir Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Orri aftur með draumainnkomu Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Kristian Nökkvi á skotskónum í Hollandi Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Börsungar gefa ekkert eftir á toppnum Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Fara fögrum orðum um Íslendinginn unga Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Hjörtun í vörn Íslands mættust ekki í kvöld Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð FH sækir sænskan miðvörð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Sjá meira