Akureyri vann FH í toppslagnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. nóvember 2008 21:17 Andri Snær Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir Akureyri í kvöld.
Akureyri er nú eitt á toppi N1-deildar karla eftir sigur á FH í Hafnarfirði í kvöld, 34-32. Heimamenn voru þó með yfirhöndina í hálfleik, 17-14. Akureyringar náðu þar með að hefna ófaranna en FH-ingar hafa tvívegis unnið þá í haust, bæði í deild og bikar. Árni Þór Sigtryggsson fór mikinn í liði Akureyrar og skoraði ellefu mörk, þar af þrjú úr vítum. Hörður Fannar Sigþórsson og Andri Snær Stefánsson skoruðu fimm mörk hvor. Hjá FH var Aron Pálmarsson sem fyrr atkvæðamikill og skoraði ellefu mörk. Ásbjörn Friðriksson og Ólafur Guðmundsson komu næstir með fimm mörk hvor. Í markinu hjá FH varði Magnús Sigmundsson 21 skot en markverðir Akureyrar vörðu samtals tólf skot. Þá vann Valur sigur á Víkingi, 31-22, eftir að hafa verið með átta marka forskot í hálfleik, 17-9. Baldvin Þorsteinsson skoraði flest mörk Valsmanna, sjö talsins, en þeir Orri Freyr Gíslason og Arnór Gunnarsson komu næstir með fimm mörk hvor. Hjá Víkingi var Sverrir Hermannsson markahæstur með sjö mörk. Að síðustu gerðu Fram og HK jafntefli, 29-29. Valdimar Þórsson fór mikinn í liði Fram og skoraði tólf mörk en þeir Gunnar Steinn Jónsson og Ragnar Hjaltested voru með fjögur hvor. Hjá Fram var Rúnar Kárason atkvæðamestur með níu mörk, Haraldur Þorvarðarson skoraði sex og Guðjón Finnur Drengsson fimm. Sem fyrr segir er Akureyri í efsta sæti deildarinnar með tólf stig. Valur er í öðru sæti með ellefu og FH í því þriðja með tíu. Fram og HK koma næst með átta stig en Fram á leik til góða. Víkingur er svo í neðsta sæti með eitt stig.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Sjá meira