Handbolti

Framarar skelltu Haukum

Framarar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Íslandsmeistara Hauka 27-20 á útivelli í N1 deild karla í handbolta í kvöld. Heimamenn höfðu yfir 12-11 í hálfleik en Framararnir voru mun sterkari í lokin.

Andri Stefan skoraði 7 mörk fyrir Hauka og Gísli Jón Þórisson 5, en Andri Berg Haraldson skoraði 7 mörk fyrir Fram og Rúnar Kárason 6. Magnús Erlendsson varði 17 skot í marki Fram.

Akureyri vann góðan sigur á Val fyrir Norðan 24-22 eftir að jafnt var í hálfleik 12-12. Oddur Grétarsson skoraði 7 mörk fyrir Akureyri og Árni Þór Sigtryggsson 6, en Arnór Malmquist skoraði 5 mörk fyrir Val.

Þá vann HK nauman sigur á Víkingi í Digranesi 25-24 þar sem Valdimar Þórsson og Einar Ingi Hrafnsson skoruðu 8 mörk hvor fyrir HK en Sveinn Þorgeirsson skoraði 7 mörk fyrir gestina.

Akureyri og Valur eru á toppi deildarinnar með 8 stig, Fram hefur 7 stig og HK og FH hafa 6 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×