Vekja athygli vestra 17. desember 2008 03:45 Lög af nýjustu plötu JJ Soul Band, Bright Lights, hafa hlotið mikla athygli að undanförnu.
Lagið Really Wild af nýjustu plötu JJ Soul Band, Bright Lights, var á dögunum tilnefnt til Hollywood Music-verðlaunanna. Lagið náði þó ekki að bera sigur úr býtum þegar verðlaunin voru afhent í síðasta mánuði. Áður hafði lagið Getting Colder By the Year af sömu plötu hlotið tilnefningu til Los Angeles Music-verðlaunanna fyrir ári síðan. Lagið That Kinda Man með JJ Soul Band komst jafnframt í úrslit í 100% Music Songwriting-keppninni fyrr á árinu. Í þeirri keppni hlaut einnig lag Ingva Þórs Kormákssonar úr JJ Soul Band og Friðriks Erlingssonar, Tonight My Love, fyrstu verðlaun í funk/latin/reggae/world-flokki og líka þriðju verðlaun í allri keppninni óháð tegund tónlistar. Það er Guðrún Gunnars sem syngur enska útgáfu lagsins en Eivör Pálsdóttir söng íslensku útgáfuna í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2003. Meðlimir JJ Soul Band eru, auk Ingva Þórs, breski söngvarinn og lagahöfundurinn JJ Soul, Eðvarð Lárusson gítarleikari, Stefán Ingólfsson sem leikur á bassa, trommuleikarinn Steingrímur Óli Sigurðarson og Agnar Már Magnússon á hljómborð.- fb
Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira