Þjálfarinn Jón Arnar Ingvarsson hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild ÍR og mun því stýra liðinu næsta vetur. Þá hefur Hreggviður Magnússon gert nýjan tveggja ára samning við félagið.
Það var fréttavefurinn karfan.is sem greindi frá þessu, en þar kom einnig fram að ÍR-ingar væru bjartsýnir á að halda þeim Nate Brown og Tahirou Sani næsta vetur.
Lið ÍR kom skemmtilega á óvart í úrslitakeppninni og sló þáverandi Íslandsmeistara KR út í fyrstu umferð og var eina liðið sem náði að setja núverandi Íslandsmeistara Keflavíkur upp að vegg í úrslitakeppninni.