Handbolti

FCK heldur sínu striki

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór Atlason kom ekki við sögu hjá FCK í dag.
Arnór Atlason kom ekki við sögu hjá FCK í dag. Mynd/Birkir Baldvinsson

FCK vann í dag öruggan sigur á AaB í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag og styrkti þar með stöðu sína á toppnum.

Arnór Atlason lék ekki með FCK í dag en liðið vann öruggan sextán marka sigur, 37-23. Liðið er nú með 24 stig á toppi deildarinnar og hefur fimm stiga forskot á AGF, GOG og Kolding en tvö fyrstnefndu liðin eiga reyndar leik til góða.

Kolding fór reyndar illa að ráði sínu í dag er það tapaði fyrir Nordsjælland á útivelli, 30-27.

Úrslit annarra leikja í dag:

Viborg - Bjerringbro-Silkeborg 27-26

Mors-Thy - Skanderborg 28-26




Fleiri fréttir

Sjá meira


×