Júlíus: Þvílíkt stoltur af liðinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. desember 2007 13:51 Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari kvenna. Mynd/GVA
Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari var í skýjunum með árangur Íslands í undankeppni EM 2008 í handbolta. Ísland vann í dag sigur á sterku liði Hvíta Rússlands. „Þetta var mjög sætt og ljúft. Þetta var flottur leikur og ég er þvílíkt stoltur af liðinu," sagði Júlíus en leikurinn í morgun var síðasti leikur Íslands í riðlinum. Síðar í dag kemur í ljóst hvort liðið lendir í fyrsta eða öðru sæti riðilsins en það skiptir í sjálfu sér engu máli. Aðalatriðið er að Ísland er komið í umspil um laust sæti á EM á næsta ári og var það reyndar ljóst fyrir leik dagsins. Júlíus segir að liðið hafi byrjað skelfilega þegar það tapaði stórt fyrir heimamönnum í Litháen. Síðan þá hafa hins vegar fjórir leikir unnist í röð. „Það hefur verið virkilega ánægjulegt að sjá hversu góð stígandi var í liðinu. Í dag unnum við hörkulið og til marks um það eru tíu leikmenn í liði Hvíta Rússlands yfir 1,80 metra á hæð - þar af sex yfir 1,84. Við erum með einn leikmann sem er yfir 1,80," sagði Júlíus. „Við vissum lítið hvað biði okkar þegar við mættum Litháum. En þegar við sáum hin liðin spila gerðum við okkur betur grein fyrir styrkleikum og veikleikum þeirra. Við sáum að við áttum góðan möguleika gegn Ísrael og Grikklandi og að leikurinn við Bosníu yrði hreinn úrslitaleikur fyrir okkur. Það gekk eftir. Sigurinn í dag var svo stór plús fyrir okkur." Hann segir að það hafi verið mikilvægt að vinna í dag, fyrir sjálfstraust leikmanna og móralinn í hópnum. „Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei áður unnið fjóra leiki í röð og er nú búið að yfirstíga þá hindrun. Það skipti okkur gríðarlega miklu máli að klára riðilinn með sigri," sagði Júlíus. Dregið verður í umspilsleikina síðar í mánuðinum en leikirnir fara fram í vor. Úrslitakeppnin sjálf fer svo fram í Makedóníu í byrjun desember á næsta ári.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira