Neyðarlegt ef Hamilton vinnur 22. október 2007 11:51 NordicPhotos/GettyImages
Fernando Alonso segir að það yrði neyðarlegt ef svo færi að Lewis Hamilton yrði dæmdur heimsmeistaratitillinn í Formúlu 1. McLaren liðið hefur enn ekki gefið upp alla von um að hampa meistaratitlinum. Kimi Raikkönen tryggði sér titilinn í Brasilíu í gær en eftir að McLaren áfrýjaði niðurstöðum rannsóknar á bensíni í bílum BMW og Williams, sem dæmt var í lagi þó ýmislegt hafi bent til annars - er ljóst að málinu er ekki alveg lokið enn. Alonso, félagi Lewis Hamilton hjá McLaren, segir að það yrði skammarlegt ef titillinn yrði færður í hendur liðsins eftir sigurhátíð Ferrari í gær. "Ef Hamilton vinnur titilinn á þessu verður það frekar ósanngjarnt og skammarlegt fyrir íþróttina. Ég veit ekki hvað Lewis finnst um málið en ég hugsa samt að hann myndi þiggja hann af því hann hefði þá unnið til hans," sagði Alonso. Hann segir samt að Raikkönen sé vel að sigrinum kominn. "Þetta er eins og í fótboltanum. Ef þú ert með fleiri stig en andstæðingurinn, þá áttu skilið að vinna. Kimi vann sex keppnir en við Lewis fjórar.."
Formúla Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Enski boltinn Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Willum snýr aftur í hollenska boltann Fótbolti Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslenski boltinn Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti „Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ Handbolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira