Magni ráðinn þjálfari Fjarðabyggðar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. október 2007 13:28 Úr leik með Fjarðabyggð í sumar.
Magni Fannberg hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildarlið Fjarðabyggðar. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi. „Mér líst mjög vel á þetta,“ sagði Magni. „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar. Það var kannski ekki erfitt að velja Fjarðabyggð en það voru sex lið sem höfðu samband og gat ég valið á milli fjögurra tilboða.“ Hann segist ekki í vafa um að hann hafi valið besta kostinn. „Þetta er mikil áskorun og hafnaði ég til að mynda stærri liðum. Ég hræðist heldur ekki þá staðreynd að Fjarðabyggð náði góðum árangri í sumar. Ég tel að ég geti byggt á því og náð svipuðum, ef ekki betri árangri.“ Magni segir að leikmannamál félagsins verði skoðuð á næstu dögum en hann vonast til að bæta við sig að minnsta kosti tveimur íslenskum leikmönnum. Hann flytur svo austur í maí næstkomandi en þangað til verða svokallaðar æfingahelgar. „Við æfum kannski í sjö skipti á fjórum dögum í kringum helgina auk þess sem við tökum þátt í deildabikarnum og Powerade-bikarnum fyrir norðan.“ Magni óttast heldur ekki að taka við liði á Austurlandi. „Ég er nú Ísfirðingur og ólst upp á Súðavík og Ísafirði. Ég er því öllu vanur. Ætli blandan af sveitastráknum og borgarbarninu í mér henti ekki vel fyrir starfið fyrir austan.“
Íslenski boltinn Mest lesið Mark ársins í Bestu deildinni komið? Íslenski boltinn ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Íslenski boltinn Andrea vann á Íslandsmeti og Stefán meistari eftir æsilegt hlaup Sport Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Enski boltinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Enski boltinn Yamal felldi tár en ætti að ná HM Fótbolti Litlu munaði að illa færi er Bill Clinton birtist óvænt Sport Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Körfubolti „Við litum út eins og þriðji flokkur“ Íslenski boltinn Trump vill fá Ítalíu á HM í stað Írans Fótbolti Fleiri fréttir Þór Ak. - Fram | Vígja nýjan völl Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Sjá meira