Tími kjarnorkusprengjunnar liðinn Guðjón Helgason skrifar 24. september 2007 12:21
Íransforseti segir tíma kjarnorkusprengjunnar liðinn. Íranar stefni ekki að smíði slíkra vopna - þau þjóni engum tilgangi. Ef svo væri hefðu Sovétríkin aldreið liðast í sundur og Bandaríkjamönnum gengið betur í Írak. Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, - er kominn til New York. Þar ávarpar hann allherjarþingið í þriðja sinn. Mótmælendur létu vel í sér heyra í gær vegna komu hans. Forsetinn flytur einnig ávarp í Columbia háskóla og voru margir námsmenn afar ósáttir við að honum yrði hleypt þar að. Borga þarf fyrir að hlusta á Íransforseta og var uppsellt á nokkrum mínútum. Íransforseta hefur ekki verið bannað að tala í ferðinni en hann fékk ekki að leggja blómsveig að þeim stað þar sem Tvíbuartugnarnir svokölluðu í World Trade Center stóðu. Honum var bannað að gera það af öryggisástæðum. Deilur Írana og Bandaríkjamanna um kjarnorkuáætlun þeirra fyrrnefndu hefur harnað síðustu vikurnar. Talað er um möguleikann á stríðsátökum. Bandaríkjamenn hafa sakað Írana um að ætla að koma sér upp kjarnorkuvopnum og hótað refsiaðgerðum til að koma í veg fyrir það. Íranar segjast ætla að nota kjarnorku í friðsamlegum tilgangi - meðal annars til raforkuframleiðslu. Í viðtali við bandaríska fréttaskýringaþáttinn Sextíu mínútur, sem sýnt var á CBS sjónvarpsstöðinni bandarísku í gær sagði Ahmadinejad það rangt að stefni í átöku. Íranar stefndu ekki að því að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Landið hefðu enga þörf fyrir þau - enda þjónuðu slík vopn hvorki hernaðarlegum né pólitískum tilgangi. Ef svo væri hefðu Sovétríkin aldrei liðast í sundur og Bandaríkjamönnum gengið betur í Írak. Forsetinn segir tíma kjarnorkusprengjunnar liðinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira