Eiður Smári hefur alltaf þurft að berjast fyrir sínu 5. júlí 2007 13:41 NordicPhotos/GettyImages
Arnór Guðjohnsen segir að sonur sinn Eiður Smári sé ekkert óvanur því að fá harða samkeppni um stöður í þeim liðum sem hann hefur spilað með á ferlinum og ítrekar að Barcelona hafi ekki borist kauptilboð í leikmanninn. Í viðtali við breska fjölmiðla í dag segir Arnór að Eiður sé staðráðinn í að berjast fyrir sínu hjá Barcelona þrátt fyrir að félagið hafi fest kaup á Thierry Henry á dögunum. "Þessi kaup hafa vakið upp spurningar, ekki aðeins hjá Eiði heldur fleiri mönnum í liðinu. Eiður þurfti alltaf að berjast fyrir sæti sínu hjá Chelsea og það er alveg eins hjá Barcelona - sama hvort menn eru að koma eða fara frá félaginu. Hann er staðráðinn í að standa sig og æfir af krafti. Hann er bara búinn að vera á Spáni í eitt ár og getur því aðeins orðið betri. Þeir hjá Barcelona segja alltaf að ef menn séu ánægðir með sitt hlutskipti hjá félaginu sé þeim velkomið að vera áfram," sagði Arnór en bætti við að England gæti komið til greina í framtíðinni. "England kæmi auðvitað til greina ef hann færi frá Barcelona," sagði Arnór og benti á að Eiður hefði t.a.m. átt gott samstarf við Sam Allardyce þegar hann var hjá Bolton á árum áður. "Eiður lítur upp til Sam og undir hans stjórn varð hann að þeim leikmanni sem hann er í dag. Sam hefur líka alltaf sagt að hann sé einn besti leikmaður sem hann hefur þjálfað," sagði Arnór.
Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Í beinni: Real Madrid - Espanyol | Þurfa að halda í við sjóðheita Börsunga Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Sjá meira