Reyndi að stökkva upp í bílinn til páfa Óli Tynes skrifar 6. júní 2007 11:03
Maður nokkur reyndi að stökkva upp í bílinn hjá Benedikt páfa fyrir stundu. Hann var kominn alveg að bílnum þegar öryggisverðir réðust á hann og sneru hann niður. Ekki er enn vitað hver maðurinn er eða hvað honum gekk til. Maðurinn er sagður vera milli tvítugs og þrítugs. Hann var íklæddur bleikum stuttermabol og með hafnaboltahúfu á höfðinu. Sjónarvottar segja að hann hafi stokkið yfir varnargirðingu og hlaupið á eftir bíl páfa. Öryggisverðir stukku þá á hann. Benedikt virðist ekki hafa tekið eftir þessu. Bíll hans hélt áfram akstrinum eins og ekkert hefði í skorist, og páfi hélt áfram að veifa til mannfjöldans. Páfi keyrir um í sérhönnuðum bíl, svokölluðum Popemobil. Hann er meðal annars með stóru skotheldu glerhúsi, svo páfi geti staðið uppréttur og veifað til mannfjöldans. Glerhúsið var þó ekki á bílnum að þessu sinnni. Þessi bíll var sérhannaður fyrir páfann eftir að reynt var að myrða Jóhannes Pál á Péturstorginu á sínum tíma.
Erlent Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira