Kínverjar gera lítið úr auknum hernaðarumsvifum Jónas Haraldsson skrifar 2. júní 2007 11:13
Kínverjar freistuðu þess að róa Bandaríkjamenn á herráðstefnu sem fram fer í Singapore í dag. Þar sagði talsmaður kínverska hersins að stækkun hans væri eingöngu í varnartilgangi og að þeir ætluðu sér ekki að ráðast gegn neinu landi. Á meðal hlustenda var Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Bandaríkin hafa haft af því áhyggjur að Kína ætli sér að bola þeim frá áhrifasvæðum sínum í Asíu. Þau hafa jafnframt gagnrýnt Kína fyrir að halda hernaðarútgjöldum sínum leyndum. Útgjöld til hersins jukust um tæp 18 prósent á þessu ári. Talsmaður kínverska hersins sagði þó að þeim fjármunum yrði ekki eingöngu eytt í ný vopn og tæki heldur væru laun hermanna hækkuð. Robert Gates sagði á sömu ráðstefnu í morgun að vantraust gæti leitt til erfiðleika sem hægt væri að komast hjá. Þá lagði hann áherslu á að ríkin tvö ættu margt sameiginlegt, til dæmis í vörnum gegn hryðjuverkum og hagsmunum í orkumálum. Þá sagði hann nauðsynlegt að koma á betra samskiptakerfi milli herja landanna tveggja til þess að koma í veg fyrir hvers konar misskilning þeirra á milli.
Erlent Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira