Hálka víða um land í nótt
Talsverð hálka myndaðist á Reykjanesbraut í nótt og var alveg fram undir morgun, en ekkert óhapp varð, sem rekja má til hennar eins og í fyrrinótt. Þá var hálka á Hellsheiði og í Þrengslum í morgun, en engin óhöpp urðu þar.