Nicolas Sarkozy, nýkjörinn forseti Frakklands, tilkynnti í morgun um nýja ríkisstjórn. Í hana skipaði hann bæði vinstri- og miðjumenn í lykilstöður. Sarkozy fækkaði og endurskipulagði ráðuneyti og eru ráðherrar nún 15 talsins.
Í takt við það sem hann hafði lofað fyrir kosningarnar er nærri helmingur ráðherra konur, eða sjö talsins. Fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar Frakklands verður haldinn síðdegis.