Franskir framámenn kátir við kjötkatlana Óli Tynes skrifar 11. maí 2007 14:41 Nicolas Sarkozy nýkjörinn forseti Frakklands.
Franska þjóðin virðist ekkert kippa sér upp við það að nýkjörinn forseti hennar skuli nú lifa í vellystingum pragtuglega á risastórri snekkju á Miðjarðarhafi. Snekkjan er í eigu auðkýfings sem er persónulegur vinur Nikulásar Sarkozys. Forsetinn pakkaði niður og flaug með einkaþotu til Möltu innan við 24 klukkustundum eftir að hann sigraði í forsetakosningunum. Vinstri menn og aðrir andstæðingar Sarkozys ráku upp ramakvein. Einnig fjölmiðlar sem reiknuðu út í skyndi að það myndi kosta 17 milljónir króna á viku að leigja dolluna. Kjósendum virðist hinsvegar standa á sama. Um 58 prósent þeirra sáu ekkert ahugavert við það að Sarkozy tæki sér frí með þessum hætti eftir stranga kosningabaráttu. Frakkar eru líka vanir því að forsetar þeirra hafi það gott. Í sinni kosningabaráttu á sínum tíma sagði Jacques Chiraq að hann myndi vera hófsamur forseti. Reyndin hefur orðið sú að hann hefur eytt yfir tuttugu milljónum króna á ári, bara í dýr vín. Hann fjölgaði líka mjög í starfsliði foretans. Eiginkona hans hefur til dæmis tuttugu og einn starfsmann bara fyrir sig. Þar á meðal eru sex ritarar og tveir einkabílstjórar.
Erlent Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira