Óttast átök gyðinga og kaþólskra Óli Tynes skrifar 23. apríl 2007 13:42 Bekedikt páfi
Bæði Gyðingar og kaþólikkar hafa áhyggjur af samskiptum trúarbragða sinna ef Páfagarður ákveður að hverfa aftur til latneskrar messu. Búist er við að Benedikt páfi tilkynni bráðlega að byrjað verði að messa aftur á latínu. Með því er komið til móts við íhaldsöfl kirkjunnar sem löngum hafa gagnrýnt þá ákvörðun sem tekin var 1965 um að messur skyldu fara fram á tungumáli hvers lands fyrir sig. Vandkvæðin gagnvart Gyðingum eru þau að í hinum hefðbundna latneska texta er sagt að Gyðingar búi í blindu og myrkri. Guð er beðinn um að lyfta hulunni af hjarta þeirra svo að einnig þeir megi viðurkenna Jesús Krist. Þessi texti endurspeglar á engan hátt breytt hugarfar kirkjunnar gagnvart gyðingum. Mjög hefur dregið úr andúð hennar á þeim og Jóhannes Páll páfi kallaði þá gjarnan "eldri bræður" kristinna manna. Því hafa menn nú áhyggjur af því hvort gömlu latínutextarnir verði notaðir óbreyttir. Það gæti leitt til árekstra.
Erlent Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán