Setti saman lista yfir fólk sem hann vildi drepa 21. apríl 2007 19:15
Fjölskylda Seung-Hui Cho, mannsins sem banaði 32 samnemendum sínum og kennurum við Virginía Tech-háskólann í Blacksburg í byrjun vikunnar, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hún kveðst miður sín yfir voðaverkunum. Svo virðist sem Seung-Hui hafi lengi áformað að myrða skólafélaga sína til að hefna fyrir einelti sem hann varð fyrir. Eldri systir Seung-Hui Cho ritaði yfirlýsinguna fyrir hönd fjölskyldunnar þar sem segir að líf þeirra allra sé búið að vera samfelld martröð undanfarna daga enda. Öll séu þau sleginn miklum harmi vegna þessara voðaverka enda hafi þau ekki órað fyrir því að Seung væri fær um að fremja slík illvirki. Þetta eru fyrstu viðbrögð fjölskyldunnar um fjöldamorðin og að líkindum einnig þau síðustu því lögmaður hennar sagði í gær að hún mundi ekki tjá sig frekar um þetta hörmulega mál. Eftir því sem dagarnir líða verður myndin af manninum sem stóð á bak við þessa verstu skotárás í sögu Bandaríkjanna ljósari. Hann virðist hafa lent utangarðs nánast um leið og hann fluttist til Bandaríkjanna ásamt fjölskyldu sinni árið 1992 og því orðið skotspónn skólafélaga sinna. Gamlir skólafélagar Seungs fullyrða að fyrir nokkrum árum hafi hann sett saman lista yfir fólk sem hann ætlaði að drepa fyrir að leggja sig í einelti. Hegðun hans er sögð hafa orðið stöðugt sérkennilegri með árunum og fyrir hálfu öðru ári var hann skyldaður til að gangast undir geðrannsókn sem þó virðist ekki hafa leitt neitt athugavert í ljós. Í dag dylst hins vegar engum hversu veikur Seung þegar hann framdi morðin 32.
Erlent Fréttir Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira