Mun líklega heita Margrét 21. apríl 2007 18:45
Lítil prinsessa bættist í dönsku konungsfjölskylduna í dag þegar Friðrik krónprins og Mary eiginkona hans eignuðust dóttur. Þetta er í fyrsta sinn í 61 ár sem stúlkubarn fæðist í fjölskyldunni. Frá fæðingu Önnu Maríu, yngri systur Margrétar Þórhildar, árið 1946 hefur ekkert stúlkubarn fæðst í konungsfjölskyldunni og Danir voru því að vonum orðnir langeygir eftir prinsessu. Í dag lauk loks þessari löngu bið þegar Mary Donaldson, eiginkona Friðriks krónprins, fæddi rúmlega þrettán marka stúlku á háskólasjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Fæðingin gekk eins og í sögu enda var krónprinsinn afar ánægður þegar hann ræddi stuttlega við blaðamenn. „Ég var ekki eins hræddur núna og í fyrra skiptið," sagði hann. Fyrir eiga þau hjónin soninn Kristján sem er eins og hálfs árs. Litla prinsessan kemur næst á eftir honum og föður sínum krónprinsinum í erfðaröð krúnunnar. Sérfræðingar í málefnum konungsfjölskyldunnar eru þegar farnir að velta því fyrir sér hvert nafn hennar verður, Margrét Henríetta í höfuðið á ömmunum er líklegast en Ingiríður í höfuðið á langömmunni er heldur ekki útilokað.
Erlent Fréttir Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira