Dýrt að kúga konur Óli Tynes skrifar 18. apríl 2007 13:30 Hagur Indverja myndi vænka ef konur fengju að vinna.
Misrétti gagnvart konum kostar Asíu- og Kyrrahafsþjóðir um 80 milljarða dollara á ári, að mati Sameinuðu þjóðanna. Þetta fé tapast með því að takmarka aðgang kvenna að heilbrigðisþjónustu, skólum og atvinnutækifærum. Ef til dæmis indverskar konur kæmust út á vinnumarkaðinn í sama mæli og þær bandarísku, myndi það auka þjóðarframleiðsluna um meira en eitt prósent, eða 19 milljarða dollara. Ein af helstu ástæðunum fyrir misrétti gagnvart konum er sú að þær eiga sér enga pólitíska fulltrúa sem tala þeirra máli. Þær fá ekki að taka þátt í ákvarðanatöku, hvort sem er heimafyrir eða úti í þjóðfélaginu. Jafnvel þótt um sé að ræða beina hagsmuni þeirra sjálfra. Aðeins sjö lönd í þessum heimshluta hafa þing þar sem konur eru yfir tuttugu prósent þingmanna. Hæst er hlutfallið á Nýja Sjálandi, þar sem það er 28 prósent. Sameinuðu þjóðirnar leggja fram fjórar einfaldar tillögur til þess að bæta ástandið. 1. Ókeypis grunnmenntun í grennd við þorp á landsbyggðinni, og námsstyrki og salernisaðstöðu fyrir stúlkur. 2. Fullorðinsfræðslu fyrir konur. 3. Konur fái sömu heilbrigðisþjónustu og karlmenn. 4. Skólabörn fái ókeypis hádegisverð, og þungaðar konur næringarríkan matarpakka.
Erlent Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira