Godcrist tónleikar í Hafnarborg 24. febrúar 2007 12:34
Sunnudaginn 25. febrúar, kl. 20.00 verða haldnir tónleikar Guðlaugs Kristins Óttarssonar í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Með Guðlaugi verða á tónleikunum níu þekktir hljóðfæraleikarar og leikin verða verk eftir Vivaldi, Bach og Charles Mingus, auk tónverka Guðlaugs sjálfs, sem eru aðalefni tónleikanna. Hér er því um að ræða mikinn viðburð og fjölbreytta dagskrá. Guðlaugur Kristinn Óttarsson er þekktur fyrir gítarleik sinn og tónsmíðar en hann hefur leikið með ýmsum hljómsveitum og tónlistarmönnum á löngum ferli sínum. Á níunda áratugnum var hann einn af þeim sem leiddi endursköpun íslenskrar rokk- og popptónlistar með hljómsveitunum Þeyr og Kukl þar sem hann bæði lék á gítarinn og samdi talsvert af efni sveitanna. Hann hefur líka komið víða við í samstarfi við aðra hljómlistarmenn og tónskáld, til að mynda sömdu hann og Björk lög saman og hann hefur leikið á flestöllum hljómplötum Megasar frá því á níunda áratugnum. Sem tónskáld sameinar Guðlaugur ýmsar stefnur og nálganir og erfitt er að skipa tónsmíðum hans á bás. Þótt hann hafi átt þátt í að skapa hið kraftmikla pönk nýbylgjuáranna eru verk hans sjálfs flóknar smíðar og vandasamar, jafnt í hljómskipan og í rythma, enda Guðlaugur annálaður fyrir djúpan skilning sinn á stærð- og tónfræði. Það má kannski segja að verkin standi einhvers staðar á mótum djass og rokks, en með tónsmíðaaðferðum sem oft eru meira í ætt við Bach eða tuttugustu aldar tónskáld eins og Schostakovitsj eða Pärt.
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Menning „Hún er komin til að vera“ Tónlist Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira